flugfréttir

Sumarvertíðin veldur þreytu meðal flugmanna sökum vinnuálags

- BALPA efast um að Norwegian sé með nógu marga flugmenn fyrir sumarið

19. júlí 2016

|

Frétt skrifuð kl. 17:01

Boeing 737 þota Norwegian á Arlanda-flugvellinum í Stokkhólmi

Nú þegar sumarið er í hámarki þá er fjöldi fólks á fararfæti og mörg flugfélög hafa vart undan að koma öllum farþegum á leiðarenda en ef ekki er nægilegur fjöldi flugmanna tiltækur getur það orsakað of mikið álag sem veldur þreytu og jafnvel veikindum.

Breskir flugmenn, sem fljúga fyrir Norwegian til og frá flugvöllum í Bretlandi, eru mjög óánægðir með hvernig flugfélaginu er stjórnað og segja að tíðar seinkanir hafi orðið vegna skorts á flugmönnum yfir háannatímann í sumar.

Hópur flugmanna, sem eru meðlimir í breska flugmannafélaginu BALPA, segja að fyrr í júlímánuði hafi Norwegian þurft að aflýsa um 18 flugferðum sem varð til þess að farþegar þurftu sjálfir að hafa fyrir því að komast á áfangastað með öðrum leiðum.

Norwegian sagði ástæðuna vera veikindi meðal áhafna en flugmenn félagsins segja það ekki satt og telja ástæðuna vera sú að félagið hafi ekki nægilega marga flugmenn tiltæka yfir hásumarið þegar mest er að gera.

Aðstoðarflugmaður í stjórnklefa á Boeing 737 hjá Norwegian

Anne-Sissel Skånvik, talsmaður Norwegian, segir félagið í mjög erfiðri stöðu þar sem mikið er um veikindi sem veldur manneklu sem hefur orðið til þess að flugferðum var aflýst með þeim afleiðingum að farþegar voru strandaglópa í Malaga, Nice, Bergen, Oslo, Stavanger og á fleiri stöðum í Evrópu.

Segir flugmenn þreytta sökum álags sem fylgir sumarvertíðinni

Bresku flugmannasamtökin hvetja Norwegian til þess að fara yfir gögn sín í flugrekstardeildinni og bregðast við þessari manneklu og fyrirbyggja að flugþreyta vegna of mikils álags verði til þess að veikindi meðal flugmanna aukist enn frekar en allur ágústmánuður er framundan sem er álíka annasamur og júlí.

„Flugmenn hjá Norwegian eru gjörsamlega að keyra sig út af of mikilli vinnu við að sjá til þess að allur þessi farþegafjöldi komist á áfangastað núna þegar sumarið er í hámarki“, segir Brian Strutton hjá BALPA.

„Það hlýtur að vera að stjórn Norwegian sé með vitlausar tölur yfir ráðningu flugmanna og þann fjölda flugmanna sem þarf til svo allt gangi samkvæmt áætlun“, segir Strutton.

BALPA ætlar að eiga fund með Norwegian og sjá til þess að félagið fari yfir málin og gangi úr skugga um að flugmennirnir verði ekki hættulega þreyttir.

„Þetta er vandamál sem á sér stað einnig meðal annarra flugfélaga akkurat á þessum tíma þegar mest er að gera í fluginu.“, segir Strutton sem tekur fram að BALPA muni halda áfram að ræða við flugfélög og komast að því hvað hefur farið úrskeiðis.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga