flugfréttir

Ætla að stækka nýjan flugvöll í Berlín sem hefur enn ekki verið tekinn í notkun

20. júlí 2016

|

Frétt skrifuð kl. 08:35

Brandenburg-flugvöllurinn í Berlín

Stjórn Brandenburg-flugvallarins í Berlín (BER) er að undirbúa framkvæmdir á stækkun vallarins en það undarleg í þessu öllu saman er að enn er ekki búið að taka flugvöllinn í notkun.

Opnun Brandenburg-flugvallarins hefur verið frestað nokkrum sinnum vegna galla í hönnun vallarins og á flugstöðinni en margir segja að flugvöllurinn sé skömm fyrir Þýskaland sem státar sig af því að vera eitt fremmsta iðnaðarland heims.

Þótt að talið sé ósennilegt að flugvöllurinn muni opna árið 2017 þá er byrjað að huga að stækkun þótt flugvöllurinn sé tæknilega draugaflugvöllur sem átti upphaflega að opna árið 2011.

Brandenburg-flugvöllur mun geta tekið við 27 milljónum farþega á ári en 29 milljónir farþega fóru í fyrra um Schöenefeld-flugvöll og Tegel-flugvöll sem eru þeir fvellir sem Brandenburg-flugvöllur mun leysa af hólmi þegar hann opnar.

Vegna þessa sér stjórn Brandenburg-flugvallarins fram á að flugvöllurinn verður ekki nægilega stór sem er ástæða þess að verið er að undirbúa enn frekari stækkun svo 8 milljónir farþegar til viðbótar geti farið um hann.

Tómar flugstöðvarbyggingar á Brandenburg-flugvellinum/p>



Verið er að íhuga að stækka flugstöðina og bæta við þriðju flugbrautinni og mögulega reisa „gervihnattar-flugstöðvar“ sem standa sjálfstæðar á flugvallarsvæðinu.

Á sama tíma eru verkfræðingar og arkitektar að klóra sér í hausnum yfir því hvernig hægt er að finna lausn á stærsta vandamálinu sem er loftræstingin í flugstöðinni en listi yfir þá galla sem komu í ljós hljóp á nokkur þúsundum atriða sem þarf að laga áður en hægt er að opna flugvöllinn.

Fjórtán dagar voru í opnun Brandenburg-flugvallarins árið 2011 og var búið að fá Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, til að klippa á borðann, þegar opnunarathöfninni var aflýst en opnuninni var frestað til mars 2013.

Haustið 2012 var opnun vallarins frestar fram í október 2013 en í janúar 2013 var opnuninni frestað enn á ný og komu þá hugmyndir um að opna flugvöllinn að hluta til einungis fyrir lágfargjaldafélög með 10 brottförum á dag.

Hætt var við þau áform og var skipt um yfirmann í stjórn flugvallarins í febrúar árið 2014 og var því lýst yfir að mögulega væri hægt að opna flugvöllinn á þessu ári. Í desember 2014 var tilkynnt að sennilega yrði flugvöllurinn opnaður síðla árs 2017 og hefur ekkert verið tilkynnt síðan.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga