flugfréttir
Jómfrúarflugi góðgerðarflugfélagsins POP frestað til ársins 2017
Tölvugerð mynd af Airbus A330-300 þotu POP
Nýtt sprotaflugfélagið, POP (People Over Profit), sem ætlaði sér að hefja flugrekstur síðar á þessu ári, hefur frestað fyrsta fluginu fram til ársins 2017.
Ástæðan er sögð vera þar sem hópsöfnun fyrir því fjármagni, sem til þarf svo hægt sé að hefja flugrekstur, hefur gengið hægar fyrir sig en
gert var ráð fyrir.
Flugfélagið, sem heitir POP (People Over Profit), ætlar sér að gefa a.m.k. 51% af gróðanum til góðgerðarmála bæði til samtaka í Bretland og á Indlandi þegar það hefur flugrekstur og stendur til að byrja með eina Airbus A330 þotu
sem mun fljúga frá Stansted-flugvelli.
Til stóð að byrja í haust að fljúga frá London Stansted til indversku borganna Amritsar og Ahmedabad en það mun frestast fram
á fyrri helming ársins 2017.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.