flugfréttir
Lufthansa, Honeywell og Airbus í samstarf um þróun á nýju kerfi
- Stefna á þróun á öflugra kerfi sem kemur í veg fyrir að flugvél fari út af braut
ROPS-kerfið má finna um borð í 430 Airbus-þotum
Lufthansa, Honeywell Aerospace og Airbus hafa gert samning sín á milli um samstarf um þróun á nýju kerfi sem á að koma í veg fyrir að flugvélar fari út af flugbraut í lendingu.
Kerfið mun byggja bæði á útafbrautarvarnarkerfi Airbus sem nefnist ROPS (Runway Overrun Prevention System) og SmartLanding kerfinu sem þróað er af Honeywell.
Með því að leiða þessi tvö kerfi saman er stefnt á að hanna eitt öruggasta kerfi sem
völ er með þeirri tækni sem ROPS og SmartLanding búa yfir.
ROPS er eins og áður kom fram þróað af Airbus sem aðstoðar flugmenn við
að fara ekki út af flugbraut en það kerfi hefur vottun frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA), EASA í Evrópu og af kínverskum flugmálayfirvöldum.
ROPS-kerfið má finna um borð í 430 Airbus-þotum af gerðinni Airbus A320, A321, A330, A350 og Airbus A380 og á enn eftir að afhenda 1,500 nýjar þotur sem koma með kerfinu.
SmartLanding kerfið frá Honeywell minnkar líkurnar á því að flugvél fer út af braut
með því að fara flugmenn við ef vélin er að koma inn til lendingar á of miklum hraða, of hátt
og einnig ef vélin er ekki stillt nægilega vel af fyrir lendingu.
SmartLanding kerfið tengist við árekstrarvarann EGPWS (Enhanced Ground Proximity
Warning System) sem finna má um borð í yfir 30 þúsund farþegaþotum og einkaþotum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.