flugfréttir
Airbus íhugar að smíða 19 sæta rafmagnsflugvél
E-Fan 2.0 vélin mun koma á markaðinn árið 2018
Airbus er að skoða möguleika á þróa 19 sæta flugvél fyrir almannaflug (general aviation) sem yrði knúin með rafmagni að hluta til.
Airbus hefur nú þegar hafið viðræður við mögulega samstarfsaðila sem eru flugvélaframleiðendur
sem eru leiðandi aðilar á sviði framleiðslu á litlum flugvélum.
Ef Airbus mun fara út í framleiðslu á 19 sæta rafmagnsflugvél þá mun sú vél koma í stað
þeirra flugvélar sem Airbus hafði íhugað að smíða sem átti að taka níu manns.
Airbus hefur verið að fikra sig áfram í þróun á rafmagnsflugvélum en lokamarkmiðið er í náinni
framtíð að koma með rafmagns-farþegaþotu á markaðinn sem gæti tekið 90 farþega.
Airbus flaug í fyrra rafmagnsflugvélinni E-Fan 1.0 yfir Ermasundið og þá er VoltAir, dótturfélag Airbus, núna að þróa tveggja sæta kennsluflugvél sem á að koma á sölumarkað árið 2017.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.