flugfréttir

Talið að þotan hafi splundrast á flugi vegna elds um borð

23. júlí 2016

|

Frétt skrifuð kl. 07:51

Vélin sem fórst, SU-GCC, á flugvellinum í Kaíró árið 2014

Talið er að EgyptAir farþegaþotan, sem fórst yfir Miðjarðarhafi þann 19. maí, hafi tvístrast í sundur í háloftunum í kjölfar elds um borð og hafi hún því ekki hrapað ofan í hafið í heili lagi eins og hingað til hefur verið talið.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá aðila sem starfar hjá egypskum stjórnvöldum, sem kemur fram undir nafnleynd, en enn er ekki vitað hvort að upptök eldsins hafi verið vegna bilunar eða hvort að einhver hafi kveikt eld um borð.

Seinasta laugardag var greint frá því að heyrst hefði í flugmönnum vélarinnar í upptöku úr hljóðritanum þar sem þeir tala um eld um borð.

Aðilinn, sem rætt var við, segir að talið sé að eldurinn hafi verið það mikill að hann hafi náð að láta Airbus A320 þotuna rifna í sundur en grunur leikur á að eldurinn hafi komið upp í eða við stjórnklefann.

Svarti kassinn úr EgyptAir þotunni rannsakaður

Flugslysasérfræðingar, sem rætt hefur verið við, telja einnig líklegt að farþegaþotan hafi splundrast í háloftunum þar sem skortur á stóri braki á sjó bendir til þess að vélin hafi ekki hrapað ofan í hafið í heilu lagi.

Þá er einnig búið að útiloka að um sjálfsvígsásetning hafi verið að ræða þar sem mjög afslappað andrúmsloft var í stjórnklefanum af hljóðupptökum að dæma, skömmu áður en vélin fór út af áætlaðri flugleið.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga