flugfréttir
Aukin eftirspurn eftir varahlutum í eldri þotuhreyfla
Yfir 1.300 PW400 hreyflar eru í umferð í dag
Eftirspurn hefur aukist eftir varahlutum í eldri gerðir þotuhreyfla sem orsakast af lágu verði á þotueldsneyti sem hefur orðið til þess að flugfélög og flugrekstraraðilar hafa sé hag sinn í því að nota áfram eldri þotur sem annars hefði verið búið að skipta út fyrir nýrri vélar.
Til að mynda er aukin eftirspurn eftir varahlutum í PW4000 hreyfilinn frá Pratt & Whitney sem knýr áfram flugvélar af gerðinni McDonnell Douglas MD-11,
Boeing 747-400, Boeing 767 og fyrstu eintökin af Boeing 777 vélunum en PW400 hreyfillinn kom á markaðinn árið 1984.
Samt sem áður er talið að „endurkoma“ Boeing 767 og eldri Airbus A330 þotna á markaðinn eiga eftir að vera skammvinn en svissneska
fyrirtækið USB Group, sem heldur m.a. utan um upplýsingar um þær farþegaþotur sem teknar eru úr umferð, segir að 2% aukning hafi verið
á undanförnu á milli ára á fjölda þeirra breiðþotna sem teknar eru úr notkun en flestar eru af gerðinni Boeing 767, Boeing 777 og Airbus A330.
Í dag eru 1.380 PW4000 hreyflar í notkun en flesta þá eru að finna á Boeing 767 þotum auka Airbus A310 véla en talið er að þeim eigi eftir
að fækka niður í 550 hreyfla fyrir árið 2025.
Þá eru 235 eldri Airbus A330 þotur sem hafa PW400-100 hreyfilinn en spáð er því að þeim vélum mun fækka niður í 20 þotur árið 2025.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.