flugfréttir

AirBaltic íhugar að fljúga CSeries CS300 til Íslands

- Gæti þó ekki orðið fyrr en eftir 4 ár

23. ágúst 2016

|

Frétt skrifuð kl. 06:34

Tölvugerð mynd af CS300 flugvél í litum AirBaltic

Keflavíkurflugvöllur gæti átt von á því að fá nýju CSeries-þotuna til sín í áætlunarflugi á næstu fjórum árum en nú þegar er eitt evrópskt flugfélag sem flýgur hingað til lands sem á von á þessari nýju þotu í flotann sinn í haust.

AirBaltic hefur flogið hingað til lands frá Riga í Lettlandi en félagið verður fyrsta flugfélagið til að fá nýju CS300 þotuna afhenta frá Bombardier.

AirBaltic hefur gefið upp til hverra borga félagið ætlar að fljúga fyrstu CSeries CS300 þotunni til en CS300 er stærri útgáfan af CSeries-vélunum en nú þegar er búið að afhenda fyrsta eintakið af minni gerðinni, CS100, til SWISS International Air Lines. AirBaltic mun fá fyrstu CS300 þotuna afhenta seinnipartinn í september eða í byrjun október í haust en félagið á von á 20 slíkum þotum sem munu koma til með að leysa af hólmi allar Boeing 737 þotur félagsins sem eru af gerðinni Boeing 737-500 og 737-300.

Fyrstu áfangastaðirnir sem fyrstu CS300 vélunum verður flogið til frá Riga eru Helsinki, Frankfurt og Amsterdam og mun fyrsta áætlunarflugið með CS300 verða flogið síðar í nóvember eða desember.

AirBaltic segir að fleiri áfangastaðir séu í sigtinu þegar vélunum fjölgar á næstu árum og er Keflavíkurflugvöllur þar á lista en það gæti þó ekki orðið fyrr en árið 2020.

Meðal annarra áfangastaða sem airBaltic ætlar að nota CS300-þoturnar til eru Madríd, Manchester, Astana, Ekaterinburg, Baku, Keflavík, Abu Dhabi, Istanbul, Dublin, St. Petersburg, Kaupmannahöfn, Stokkhólmur, Osló og fleiri staðir.

CS300 yrði þá ný flugvélategund á Keflavíkurflugvelli en ekkert annað flugfélag, sem flýgur til Íslands, hefur pantað CS300 vélina en þær vélar sem Lufthansa pantaði voru pantaðar fyrir SWISS International Air Lines.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga