flugfréttir

Norwegian mun fljúga til Íslands frá Madríd og Barcelona

- Til Íslands frá fimm borgum í Evrópu

23. ágúst 2016

|

Frétt skrifuð kl. 19:00

Boeing 737-800 vél Norwegian í lendingu á Keflavíkurflugvelli

Norwegian ætlar að hefja flug til Íslands í vetur frá tveimur áfangastöðum á Spáni sem eru Barcelona og Madríd.

Norwegian mun byrja á fluginu frá Madríd og verður það fyrsta flogið til Keflavíkur þann 1. nóvember en fyrsta Íslandsflugið frá Barcelona verður flogið daginn eftir eða þann 2. nóvember.

Norwegian flýgur í dag til Íslands frá Osló og Bergen en tæp vika er síðan að félagið tilkynnti að það muni hefja flug til Íslands frá London Gatwick en það flug mun hefjast þann 1. nóvember, sama dag og fyrsta Spánarflugið.

Félagið mun því koma til með að fljúga til Íslands frá fimm borgum eftir 2. nóvember en flugið til Barcelona er flogið í samkeppni við Icelandair, WOW air, Vueling og Primera Air sem öll fljúga þangað en þó háð árstíðum.

Flugið til Madrídar verður flogið í samkeppni við Iberia Express og Icelandair en flugfélögin tvö tengja einnig Madríd við Ísland árstíðarbundið.

Flogið verður tvisvar í viku frá Madríd, á þriðjudögum og laugardögum og er brottför kl. 07:15 frá Barajas-flugvellinum og lent í Keflavík klukkan 10:25 en til baka er brottför í Keflavík kl. 11:10 og lent í Madríd kl. 16:30.

Frá Barcelona verður einnig flogið tvisvar í viku, á miðvikudögum og laugardögum og er brottför frá Barcelona kl. 06:15 og lent í Keflavík kl. 09:45. Brottför frá Keflavík til baka er kl. 10:30 og lent í Barcelona kl. 15:45.

Ekkert flugfélag hefur vaxið eins hratt á Spáni og Norwegian en umsvif félagsins frá janúar til júlí á þessu ári voru 24% meiri m.a.v. sama tímabil í fyrra.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga