Um vefinn
Vefurinn er frétta- og afþreyjingavefur fyrir alla þá sem hafa áhuga á flugi, hvort sem þeir eru flugmenn, starfa í fluginu eða hafa einfaldlega mikinn áhuga á flugi - vefurinn er einnig fyrir þá sem hafa ekki neinn áhuga á flug.
Allar fréttir sem birtast á vefnum tengjast flugi með einum eða öðrum hætti og eru bæði af erlendum vettfangi og innlendum.
Vefurinn var hannaður, forritaður og uppsettur af mér, Ingþóri Ingólfssyni og er ég einnig ritstjóri og ábyrgðarmaður síðunnar
Markmið vefsins er að miðla öllu því sem er að gerast í fluginu til þeirra sem vilja fylgjast með því um leið og það gerist og einnig skapa vettfang til að þeir sem hafa þetta skemmtilega áhugamál geti á einum stað fylgst með öllu því helsta sem er að gerast.
Flugið er heill heimur út af fyrir sig og margt sem gerist í honum á hverjum degi.
Allt sem varðar efni vefsins, fréttatilkynningar, leiðréttingar, ábendingar eða fyrirspurnir má senda á netfangið
ritstjorn@alltumflug.is