flugfréttir

Rifrildi milli flugfreyju og flugþjóns yfir vatnsflöskum olli seinkun

- Vélinni snúið við og beðið eftir nýjum flugliða

25. ágúst 2016

|

Frétt skrifuð kl. 13:07

Mynd sem farþegi tók af flugstjóranum er hann kom fram og ávarpaði farþega

Flugvél ein frá easyJet var fyrir töluverði seinkun í gær í kjölfar rifrildis milli tveggja áhafnarmeðlima sem lentu saman í miklum deilum rétt áður en vélin átti að fara í loftið frá Gatwick-flugvellinum í London.

Um var að ræða flugfreyju og flugþjón og upphófst rifrildið þegar þau voru að afpakka vatnsflöskum fyrir brottför til Belfast sem endaði með því að flugstjórinn þurfti að snúa vélinni við og losa sig við annan flugliðann og fá nýjan í hans stað.

Flugstjórinn kom út úr stjórnklefanum til að ávarpa farþega sem voru margir hverjir frekar pirraðir þar sem mjög heitt var í veðri og flestir að kafna úr hita um borð.

„Easyjet-flugið mitt er að snúa við að flugstöðinni vegna þess að tveir flugliðar fóru að rífast og þeir eru að losa sig við einn þeirra“, setti einn farþegi á Twitter-síðu sína.

„Fullt af börnum hérna um borð. Þvílíkt ástand. Og flugstjórinn er að gera allt sem hann getur en samt eru allir pirraðir“, setti annar farþegi á Twitter.

„Vinsamlegast sýnið þolinmæði. Við erum að dreifa vatnsflöskum. Mæli með því að þeir sem sitja aftast komi hingað fram þar sem vatnsflöskurnar, sem eru frammí, eru kaldari“, sagði flugstjórinn.

Klukkutíma seinkun varð á fluginu þar sem vélin þurfti að bíða eftir nýjum flugliða en easyJet gaf út yfirlýsingu þar sem flugfélagið baðst afsökunar á atvikinu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga