flugfréttir

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

- 1.200 færri flugumferðarstjórar á hverjum degi miðað við fyrir 10 árum síðan

28. júní 2023

|

Frétt skrifuð kl. 13:02

Samgönguráðuneyti Bandaríkjanna hefur miklar áhyggjur af skorti á flugumferðarstjórum í Bandaríkjunum

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að takast á við með viðunandi hætti til að fyrirbyggja að vandamálið bitni á flugöryggi.

Í skýrslunni, sem var gefin út þann 21. júní síðastliðinn, kemur farm að heimsfaraldurinn hefur haft þau áhrif á stofnunina að ekki hefur náðst að manna lágmarksfjölda flugumferðarstjóra á nokkrum starfsstöðvum í Bandaríkjunum sem hefur ollið seinkunum á áætlunarflugi auk þess sem flugfélög hafa neyðst til þess að aflýsa flugi.

„Á meðan að Bandaríkin geta státað sig að einu öruggasta flugumferðakerfi í heiminum þá hefur verið skortur á hæfum flugumferðarstjórum og eftirlitsmönnum í flugumferðarstjórnun sem er áhættusamt fyrir iðnaðinn“, segir m.a. í skýrslunni.

Fram kemur að í mars árið 2022 voru 20 flugumferðarstjórnstöðvar af 26 í Bandaríkjunum undirmannaðar þar sem 85% starfsmanna voru við störf af þeim fjölda sem telst viðunandi sem þýðir að stór flugumferðarsvæði á borð við Miami, Dallas-Fort Worth, Atlanta og Chicago höfðu ekki nægilega marga flugumferðarstjóra á vakt og voru þeir færri en ætlast er til samkvæmt reglugerðum.

Vandamálið er enn við lýði en til að mynda þurftu flugfélög að aflýsa 40% af öllu áætlunarflugi um LaGuardia-flugvöllinn í New York þann 26. júní sl. og 35% flugferða var aflýst sama dag um Newark-Liberty flugvöllinn í New Jersey og 15 prósent af öllu flugi um JFK-flugvöllinn var aflýst vegna skorts á flugumferðarstjórum.

NATCA, verkalýðsfélag flugumferðarstjóra í Bandaríkjunum, segir að á hverjum degi sé um 1.200 færri flugumferðarstjórar á vakt í Bandaríkjunum samanborið við árið 2013.

Rich Santa, yfirmaður NATCA, segir að miklir annmarkar séu hjá FAA þegar kemur að ráðningarstefnu stofnunarinnar og sé ekki verið að ráða nógu marga flugumferðarstjóra miðað við aukningu í áætlunarflugi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga