flugfréttir

Indversk stjórnvöld ætla að banna „selfie“ um borð í flugvélum

- Myndatökur meðal áhafnarmeðlima áhyggjuefni á Indlandi

27. ágúst 2016

|

Frétt skrifuð kl. 12:57

Bann við „selfie“ um borð í flugvélum mun taka í gildi á næstu vikum á Indlandi

Flugmálayfirvöld á Indlandi ætla banna áhafnarmeðlimum og flugfarþegum að taka myndir af sér um borð sem er fyrirbæri sem er betur þekkt undir heitinu „selfie“.

Indversk flugmálayfirvöld ætla að sjá til þess að flugfélög í landinu muni framfylgja banninu en þetta er gert í þeim tilgangi að koma í veg fyrir myndatökur um borð og þá sérstaklega í stjórnklefa á flugvélum en algengt hefur verið að indverskir atvinnuflugmenn hafi verið að taka „selfie“ og deilt á samfélagsmiðla.

Síðastliðin ár hefur verið mjög algengt að flugfreyjur og flugþjónar láti taka myndir af sér í stjórnklefa á farþegaþotum og það á einnig við flugmenn sem hafa viljað sýna öðrum hvernig lífið er í háloftunum.

Farþegar sem ferðast til Indlands gætu lent í vandræðum
ef þeir ætla að taka „selfie“ um borð

Sex flugmenn hjá einu indversku lágfargjaldarfélagi voru dregnir inn á teppið á dögunum hjá flugmálayfirvöldum vegna myndatöku þar sem þeir tóku myndir af sér og fjölskyldumeðlimum í stjórnklefa.

Flugmálayfirvöld á Indlandi segjast líta slíkt mjög alvarlegum augum en þrátt fyrir að núverandi reglur á Indlandi banni myndatökur í flugvélum þá hefur þeim alls ekki verið framfylgt hingað til.

Samkvæmt indverskri reglugerð frá árinu 1937 þá kemur fram að ljósmyndum um borð í loftfari sé með öllu óheimil og sé aðeins gerð undantekning fyrir slíku ef viðeigandi leyfi hefur verið gefið.

Víðar í Asíu hafa flugmenn lent í vandræðum vegna ljósmynda sem þeir hafa deilt á samfélagsmiðla en t.a.m. var einn flugmaður í Kína staðinn af því að streyma beinni útsendingu í gegnum farsíma á Netið er hann var að fara í flugtak á farþegaþotu með yfir 100 farþega um borð.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga