flugfréttir

Eagle Airways á Nýja-Sjálandi hættir starfsemi eftir 47 ár á flugi

29. ágúst 2016

|

Frétt skrifuð kl. 12:51

Beech 1900D skrúfuvél Eagle Airways

Nýsjálenska flugfélagið Eagle Airways hefur hætt starfsemi eftir flugrekstur í næstum hálfa öld.

Eagle Airways er dótturflugfélag Air New Zealand og hafði félagið sinnt innanlandsflugi á Nýja-Sjálandi undir merkinu Air New Zealand Link en félagið tengdi minni borgir og bæi við þrjá stærstu alþjóðaflugvellina á eyjunum sem eru Auckland, Wellington og Christchurch.

Air New Zealand ákvað í nóvember árið 2014 að leggja Eagle Airways niður þar sem í ljós kom að Beech 1900D skrúfuvélar félagsins voru fjárhagslega mjög óhentugar fyrir innanlandsflugið.

Tvö flugfélög sinna ennþá innanlandsflugi undir merkjum Air New Zealand Link sem eru Air Nelson og Mount Cook Airline en þau félög hafa ATR 72-500 skrúfuvélar í flotanum og Bombardier Q300.

Eagle Airways flaug sitt síðasta áætlunarflug sl. föstudag (26. ágúst) frá Wellington til Hamilton en öllu starfsfólki félagsins hefur verið fært yfir til Air Nelson og Mount Cook Airline.

Eagle Airways var stofnað árið 1969 sem flugskóli en árið 1973 hóf það áætlunarflug með Beechcraft Baron vélar fyrir flugfélagið New Zealand National Airways sem var innanlandsflugfélag landsins þar til það sameinaðist rekstri Air New Zealand árið 1978.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga