flugfréttir

Flugstjóri með ógilt skírteini flaug þotu félagsins og gerðist „laumufarþegi“

- Var ekki á farþegalista né lista yfir áhöfn

18. september 2016

|

Frétt skrifuð kl. 07:51

Boeing 737 þota Jet Airways á flugvellinum í Bangalore

Flugstjóri hjá indverska flugfélaginu Jet Airways hefur verið leystur af störfum eftir að í ljós kom að hann hafði flogið sem „laumufarþegi“ um borð í þotu félagsins og þar af flogið vélinni í einhver skipti með ógilt skírteini auk þess sem hann flaug sem farþegi án þess að vera á farþegalista.

Indversk flugmálayfirvöld klóra sér nú í höfðinu yfir því hvernig viðkomandi flugmanni tókst að vera um borð í vélum félagsins í nokkur skipti með engin gögn undir höndum en hann er einn af yfirflugstjórum hjá Jet Airways.

Flugstjórinn flaug m.a. frá Delhi til Bangalore og til baka án þess að hafa atvinnuflugmannsréttindi í gildi og ofan á það þá var öllum upplýsingum um flugtíma, og um að hann hafi komið að stjórn vélarinnar, eytt.

Þá hafði flugstjórinn einnig flogið sem farþegi frá Delhi til Bangalore til að vera viðstaddur viðeigandi próf í þeim tilgangi að fá réttindi sín til baka.

„Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum og flokkast þetta undir öryggismál sem þarf að skoða betur og þarf að komast að því hvernig flugmanninum tókst að fara huldu höfðu án þess að skilja eftir sig nein ummerki um borð. Samkvæmt okkar bókum þá var viðkomandi í stjórnklefanum í einhverjum tilfellum og flaug m.a. vélinni“, segir yfirmaður indverskra flugmála.

Viðkomandi flugstjóri sér m.a. um að þjálfa aðra flugmenn hjá Jet Airways en hann hefur verið leystur frá störfum á meðan atvikið er rannsakað en flugfélagið gefur ekki upp hvort stefnan sé að reka hann endanlega.

Upp komst um málið fyrir nokkrum mánuðum síðan þegar í ljós kom að flugstjórinn var með útrunnið hæfnispróf fyrir tegundaráritun sem nefnist PCC („pilot proficiency check“) en slíkt próf segir til um hvort að kunnáttu flugsmanns á viðkomandi flugvélategund sé í lagi.

Flugmálayfirvöld reyna nú að komast að því hver eyddi út öllum upplýsingum um þau flug sem flugstjórinn flaug og hvernig náði að fela slóð hans í stjórnklefanum en flugmaður með útrunnið PCC hefur ekki leyfi til þess að fljúga með farþega.

Þá er hulin ráðgáta hvernig flugstjórinn náði að ferðast með flugvél félagsins frá Delhi til Bangalore til að endurheimta PPC prófið sitt en hann var ekki á „manifesto“ sem er listi yfir farþegana um borð og ekki á lista yfir áhöfn og þá er ekki vitað hvernig honum tókst að komast í gegnum öryggisleit og innritun með enga pappíra í höndunum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga