flugfréttir
Hlaðmaður læstist inni í frakt á Boeing 777 sem fór í loftið með hann til Angóla
- Létu flugmennina vita að eins stafsmann væri saknað á jörðu niðri
Boeing 777-300ER ýtt frá hlaði á flugvellinum í Lissabon í Portúgal
Farþegaþota af gerðinni Boeing 777-300ER þurfti að snúa við í gær til Porto í Portúgal eftir að í ljós kom að flugvallarstarfsmaður hafði lokast inni í fraktrými vélarinnar en upp komst um málið þegar vélin var farin í loftið en áfangastaður hennar var Angóla í Afríku.
Vélin, sem er frá flugfélaginu TAAG Angola Airlines, var komin í 35.000 feta hæð eftir flugtak frá Lissabon þegar haft var samband við flugmenn vélarinnar
og þeir látnir vita að mögulega væri einn hlaðmaður læstur inn í fraktinni þar sem eins starfsmanns var saknað frá flugvellinum en seinast sást til hans þar sem hann
var að hlaða frakt inn í fraktrými vélarinar.
Vélinni var snúið við og lækkuðu flugmennirnir flugið mjög hratt og lenti vélin skömmu síðar á flugvellinum í Porto og reyndist sá grunur á rökum reistur þar sem hlaðmaðurinn var inn í fraktinni.
Hlaðmaðurinn þjáðist af ofkælingu og var hann fluttur með hraði á sjúkrahús til aðhlynningar en þjónustufyrirtækið segir að starfsmaðurinn hafi verið að koma
gæludýrum fyrir um borð þegar hann skyndilega féll í yfirlið sem varð til þess að vélin fór í loftið áleiðis til Lúanda með hlaðmanninn um borð.
Um 40 mínútur liðu þar til að í ljós kom að starfsmaðurinn hafði horfið sporlaust. Starfsmannafélagið segir að hann hafi verið að koma tveimur búrum með gæludýrum fyrir
og festa þau kirfilega niður þegar hann missti meðvitund.
Fram kemur að starfsmaðurinn sé á batavegi á sjúkrahúsi og mun hann ná sér að fullu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.