flugfréttir
Þotu skipað að snúa við af yfirvöldum vegna eins farþega um borð
Boeing 737 þota Belavia á flugvellinum í Kænugarði
Farþegaþota frá Belavia Belarusian Airlines þurfti fyrir helgi að snúa við á leið sinni frá Úkraínu til Hvíta-Rússlands þar sem stjórnvöld vildu hafa uppi á einum farþega um borð í vélinni og fá hann í sínar hendur.
Vélin, sem var af gerðinni Boeing 737-800, var á leið frá Kænugarði til Minsk en þegar vélin var að nálgast landamæri
Úkraínu og Hvíta-Rússlands hafði flugumferðarstjóri samband við flugstjórann og kom áleiðis skipun um að snúa vélinni
við aftur til Kiev.
Flugumferðarstjórinn sagðist ekki geta gefið upp ástæðuna fyrir því að vélin yrði að snúa við en kom því áleiðis til áhafnarinnar
að ef vélin myndi ekki verða við þessari ósk yrði orrustuþota ræst út og send á eftir vélinni.
Vélin lenti aftur á flugvellinum í Kiev skömmu síðar en einn farþegi, sem reyndist vera Bandaríkjamaður, var fjarlægður úr vélinni
af yfirvöldum og lögreglu en flugfélagið Belavia segir að farþeginn hafi síðar verið látinn laus og náði hann að taka annað flug
með félaginu til Minsk.
Belavia segir að félagið muni fara fram á skaðabætur frá úkraínsku flugumferðarstjórninni fyrir þeim kostnaði sem fór í að snúa
vélinni við þar sem hún þurfti m.a. að taka aftur eldsneyti í Kiev.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.