flugfréttir

Atvik á flugvellinum í Helsinki til rannsóknar

- Fengu leyfi til að aka yfir flugbraut í veg fyrir SAS-þotu í lendingu

2. nóvember 2016

|

Frétt skrifuð kl. 13:08

Airbus A320 þota Finnair

Flugmálayfirvöld í Finnlandi rannsaka nú atvik sem átti sér stað á Vantaa-flugvellinum í Helsinki er Airbus-þota frá Finnair náði með naumindum að koma í veg fyrir að illa færi er þeim var gert að aka yfir flugbraut á sama tíma önnur þota var að koma inn til lendingar.

Finnsk flugmálayfirvöld hafa hampað flugmönnum Finnair-vélarinnar fyrir að bregðast hárrétt við með því að aka ekki yfir flugbrautina þrátt fyrir að hafa fengið leyfi frá flugturni en flugmennirnir höfðu komið auga á flugvél í lendingu sem var að koma inn á brautina sem reyndist vera þota frá SAS af gerðinni Bombardier CRJ900.

Atvikið átti sér stað klukkan 08:50 að staðartíma þann 28. október sl. en samkvæmt veðurupplýsingum þá var lítils háttar súld er atvikið átti sér stað en skyggni var samt sem áður ágætt en fram kemur að atvikið hefði geta farið mun verr ef skyggnið hefði verið verra.

Bombardier CRJ900 þota á vegum SAS

Nokkrar þotur frá Finnair voru að aka („taxiing“) á sama tíma og kemur ekki fram hvaða flug átti í hlut en umrædd vél var af gerðinni Airbus A320.

Rannsóknarnefnd flugslysa í Finnlandi telur að um mistök hafi verið að ræða hjá flugumferðarstjórum þar sem þeir gáfu vélinni leyfi til að halda áfram og fara yfir brautina án þess að gefa því gaum að önnur flugvél var að lenda á brautinni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga