flugfréttir
Útlitið dökkt með grænlenska drauminn
- Denim Air svipt flugrekstarleyfi sínu
Fokker 100 þota Denim Air
Hollensk stjórnvöld hafa svipt flugfélaginu Denim Air flugrekstarleyfinu en félagið leigði m.a. grænlenska flugfélaginu Greenland Express sína fyrstu farþegaþotu sem var af gerðinni Fokker 100.
Denim Air, sem var stofnað árið 1996, hefur séð betri tíð og hefur haft fleiri vélar í flota sínum en
ein Embraer ERJ 145 þota er nú eina vél félagsins sem hafði fimm þotur fyrir nokkrum dögum síðan.
Grænlenski kaupsýslumaðurinn Gert Brask átti í stormasömu viðskiptasambandi við Denim Air sem endaði með
því að flugfélagið hans Greenland Express breytti nafni sínu í Sky Greenland í janúar á þessu ári
og keypti Brask allan rekstur Denim Air.
Gert Brask, framkvæmdarstjóri Sky Greenaland
Þá hafði Denim Air fullgilt flugrekstarleyfi og þrjár þotur í flotanum en sl. fimmtudag var leyfi félagsins afturkallað
og hefur hollenska flugvélaleigan, Mass Lease BV, eigandi Fokker 50 og Fokker 100 vélanna, tekið vélarnar aftur í sínar
hendur.
Eina flugvél Denim Air í dag, Embraer EJR 145 þotan, er nú í leigu hjá austurríska flugfélaginu People´s Viennaline en
síðan á miðvikudag í seinustu viku hefur hún staðið aðgerðarlaus á flugvellinum í Friedricshafen.
Gert Brask segir að Sky Greenland hafi selt sinn hlut í Denim Air og komi flugfélagið grænlenska ekki nálægt
rekstrinum lengur.
Reyndu ítrekað að koma á flugi milli Grænlands og Danmerkur
Gert Brask hefur frá árinu 2012 reynt að koma á flugsamgöngum milli Danmerkur og Grænlands og var flogið
fyrst um sinn með viðkomu á Keflavíkurflugvelli sumarið 2014 en flugið gekk bröskulega þar sem oft þurfti
að fella niður flug þar sem Denim Air hafði ekki áhöfn tiltæka fyrir Greenland Express.
Greenland Express byrjaði að fljúga milli Danmerkur og Grænlands með viðkomu á Íslandi árið 2014
Eftir að flugreksturinn lá niðri eftir fyrsta sumarið var fjórum sinnum reynt að hefja flug að nýju en án árangurs en því næst var tilkynnt að félagið grænlenska væri í viðræðum við rússnesku flugvélaverksmiðjurnar um pöntun á Sukhoi Superjet 100 þotum og þá stóð einnig til að fá Airbus A320 þotur í flotann en án árangurs.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.