flugfréttir

Tvær þotur frá KLM og IndiGo fóru of nálægt hvor annarri

29. nóvember 2016

|

Frétt skrifuð kl. 08:39

Boeing 787-9 þota KLM Royal Dutch Airlines á flugi

Tvær farþegaþotur, önnur frá KLM Royal Dutch Airlines og hin frá indverska flugfélaginu IndiGo, eru sagðar hafa farið of nálægt hvor annarri yfir Indlandi en flugmálayfirvöld rannsaka nú atvikið.

Þotan frá KLM var af gerðinni Boeing 787-9 og var vélin á leið frá Amsterdam til Kuala Lumpur en þegar vélin var í 35.000 fetum yfir Indlandi fór hún of nálægt Airbus A320 þotu frá IndiGo sem var á leið frá Delhi til Bangalore.

Árekstrarvarar í báðum vélunum fóru í gang þar sem vélarnar fóru nær hvor annarri en lágmarksaðskilnaður gerir ráð fyrir en atvikið átti sér stað þann 2. nóvember.

Airbus A320 þota IndiGo hafði fengið leyfi til að hækka flug sitt upp í 35.000 fet en skömmu síðar fór viðvörunarkerfi í gang sem gerði flugmönnunum viðvart að önnur þota var of nálægt henni.

Flugmennirnir tóku vélina strax aftur niður í 34.000 fet eftir viðvörunina en báðar vélarnar héldu för sinni áfram og lentu heilar á höldnu á áfangastað.

Indverk flugmálayfirvöld segja um mjög alvarlegt atvik að ræða og er sagt að aðeins 60 metra lóðréttur aðskilnaður hafi skilið vélarnar í sundur þegar minnstu munaði en láréttur aðskilnaður var 6,7 kílómetrar.

KLM segir ekki um alvarlegt atvik að ræða og hafi áhöfnin og farþegarnir um borð aldrei verið í neinni hættu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga