flugfréttir

76 látnir eftir að flugvél með fótboltalið fórst í Kólumbíu í nótt

- Lýstu yfir neyðarástandi vegna bilunar í rafkerfi

29. nóvember 2016

|

Frétt skrifuð kl. 10:55

Fimm manns komust lífs af eftir slysið

Að minnsta kosti 76 eru látnir eftir mannskætt flugslys sem átti sér stað í nótt er flugvél af gerðinni Avro RJ-85 frá flugfélaginu LAMIA fórst í aðflugi að flugvellinum í Medellín í Kólumbíu eftir flug frá Santa Cruz í Bólivíu.

72 farþegar voru um borð í vélinni og níu manna áhöfn og þar á meðal brasilíska fótboltaliðið Chapecoense sem átti að mæta kólumbíska liðinu Atletico Nacional í lokariðli Copa Sudamericana.

Vélin var í um 25 kílómetra fjarlægð frá José María Córdova flugvellinum þegar vélin hvarf skyndilega af ratsjá og hófst þegar í stað leit að vélinni og fannst flakið í fjallshlíð í úthverfinu La Ceja, skammt suður af Medellín.

Skúrir og þrumuveður hafði nýlega gengið yfir svæðið þar sem vélin fórst en samband rofnaði við vélina klukkan 02:56 í nótt að staðartíma eða kl. 7:56 að íslenskum tíma en þá var vélin í 15.500 feta hæð.

Staðfest hefur verið að 76 eru látnir en fimm hafa fundist á lífi, þrír leikmenn, ein flugfreyja og einn blaðamaður. Sá sjöttu sem fannst lést skömmu síðar á sjúkrahúsi.

Í yfirlýsingu frá flugvellinum í Medellín kemur fram að flugmennirnir höfðu lýst yfir neyðarástandi um borð skömmu áður en vélin fórst vegna vandamáls með rafkerfi vélarinnar.

Vélin bar skráninguna CP-2933 og var hún 17 ára gömul en hún var afhent ný til LAMIA Bolivia árið 1999.

Um borð í vélinni var brasilíska fótboltaliðið Chapecoense







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga