flugfréttir
SAS gengur frá fjármögnun á fyrstu A320neo þotunum
Airbus A320neo þota Scandinavian Airlines
Scandinavian Airlines (SAS) hefur gengið frá fjármögnun á fimm Airbus A320neo þotum af þeim 30 sem félagið pantaði árið 2011 en vélarnar verða seldar til flugvélaleigunnar Jackson Square Aviation og leigðar svo til baka.
SAS hefur nú þegar fengið eina Airbus A320neo vél afhenta en hinar fjórar verða afhentar til ársins 2018.
SAS tekur vélarnar á langtímaleigu frá Jackson Square
Aviation sem hefur höfuðstöðvar sínar í Kaliforníu og útibú í Dublin, Singapore og í Toulouse.
Þá hefur SAS einnig gengið frá fjármöngun við kaup á þeim ellefu Airbus A321neo þotum sem félagið pantaði einnig.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.