flugfréttir
Eldur kviknaði í flughermi í Frankfurt
Eldurinn kom upp í gær í flughermi sem notaður er til að þjálfa bæði flugmenn og áhafnir hjá Condor
Eldur kom upp í flughermi í gær í húsnæði þar sem þjálfunarbúðir Condor flugfélagsins eru staðsettar á flugvellinum í Frankfurt.
Um 200 manns voru í byggingunni og var öllum gert að yfirgefa húsnæðið þegar eldsins var vart en eldurinn kom upp í eftirlíkani af farþegarými fyrir Boeing 767 sem notað er til að þjálfa flugfreyjur og flugþjóna í öryggisatriðum og viðbrögð við neyðarástandi.
Slökkviliðið á Frankfurt-flugvelli segir að einn hafi verið fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar en slökkviliðinu tókst að ráða
niðurlögum eldsins á 45 mínútum.
Að sögn lögreglu er talið að bilun hafi orsakað eldsvoðann en flughermirinn er sagður vera gjörónýtur og er tjónið metið
á 2 milljarða króna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.