flugfréttir
Benóný Ásgrímsson sæmdur fálkaorðunni
- Hrærður en afar þakklátur fyrir heiðurinn
Benóný Ásgrímsson ásamt Brynhildi Ástu Bjartmarz stjúpdóttur sinni sem flaug með honum síðasta flugið í haust
Benóný Ásgrímsson, fyrrverandi þyrluflugstjóri Landhelgisgæslunnar, var í dag sæmdur fálkaorðunni en hann tók við riddarakrossi fyrir björgunarstörf og framlag til íslenska flugmála en Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sæmdi tólf manns í dag fálkaorðunni.
Benóný sagði í samtali við Alltumflug.is að þetta hefði komið honum á óvart og var hann mjög þakkláttur fyrir þann heiður sem orðunni fylgir en tók fram
að hann taldi sig hafa nú einungis hafa verið að gegna vinnunni sinni sem var eins og hvert annað starf þótt það hafi verið mjög gefandi.
Benóný hefur verið einn þekktasti þyrluflugmaður landsins og hefur enginn annar flugmaður starfað eins lengi við björgunarflug hér á landi en Benóný
hóf störf hjá Landhelgisgæslunni árið 1966 en fyrstu fjórtán árin var hann á gamla varðskipinu Ægi áður en hann fór í flugnám.
Benóný lendir TF-SYN eftir síðasta flugið þann 30. október sl. haust
Fyrst lærði Benóný á flugvél áður en hann fór yfir á þyrluna árið 1978 og eru þau mörg mannslífin sem hann hefur bjargað á þessum 38 árum þrátt
fyrir að hann hafi sjálfur ekki töluna á hreinu.
„Þetta er nú einnig ekki síður heiður fyrir allt flugið á Íslandi“, segir Benóný varðandi Fálkaorðuna og tekur hann fram að hann hafi verið frekar hrærður
er í ljós kom að hann yrði sæmdur riddarakrossinum en fyrst og fremst þakklátur.
Þá sagði Benóný að það hafi verið mjög skemmtileg reynsla að vera viðstaddur athöfnina á Bessastöðum.
Benóný flaug sitt síðasta flug fyrir Landhelgisgæsluna þann 30. september sl. haust eftir farsælan feril hjá gæslunni en nafn Benónýs og Landhelgisgæslan
hafa haldist hönd í hönd í augum og eyrum þjóðarinnar í áratugi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.