flugfréttir
Boeing 787 flaug aftur í tímann: Fór í loftið á nýársdag en lenti á gamlársdag
Dreamliner-þota United Airlines fór í loftið á nýársdag frá Shanghai en lenti á gamlárdag í San Francisco
Það hljómar frekar undarlega þegar sagt er að flugvél hafi farið í loftið á nýársdag en lent aftur 10 tímum síðar á gamlársdag.
Segja má að farþegaþota af gerðinni Boeing 787-9 frá United Airlines hafi flogið aftur í tímann þegar hún fór í loftið frá Pudong-flugvellinum í Shanghai
en þegar vélin lenti í San Francisco var ennþá gamlárskvöld.
Ástæðan er tímamismunurinn en vélin flaug yfir Kyrrahafið og yfir tímalínuna og inn í „gærdaginn“ og var enn 31. desember í Kaliforníu
þegar vélin lenti.
Brottför frá Shanghai var kl. 00:15 á nýársdag en þá var klukkan 8:15 að morgni í San Francisco á gamlársdag en vélin lenti þar 10 klukkutímum
og 3 mínútum síðar eða klukkan 18:34 að staðartíma en þá var 5 og hálf klukkustund eftir af árinu 2016.
Þessi tíðindi hafa vakið þónokkra athygli á samfélagsmiðlum í dag enda svo sannarlega undarlegt að hægt sé að fljúga frá árinu 2017 og
aftur til ársins 2016.
Þess má geta að 16 klukkutíma munur er á Shanghai og San Francisco.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.