flugfréttir
Farþegamet slegið í Færeyjum árið 2016
- Yfir 290.000 farþegar um Vágar-flugvöll í fyrra
Farþegar á flugvellinum í Færeyjum
Aldrei hafa eins margir farþegar farið um Vágar-flugvöllinn í Færeyjum og árið 2016 en farþegamet var slegið í fyrra, fimmta árið í röð.
Árið 2016 fóru 292.393 farþegar um flugvöllinn í Færeyjum sem er 5,8% aukning frá árinu 2015 en eins og er þá er færeyska
flugfélagið Atlantic Airways eina flugfélagið sem flýgur reglubundið áætlunarflug til og frá eyjunum.
Gert er ráð fyrir að farþegafjöldinn muni þó stóraukast á þessu ári þar sem tvö erlend flugfélög hafa boðað komu sína
til Færeyja sem er SAS sem mun hefja flug til Vágar-flugvallarins frá Köben þann 26. mars en sama dag mun skoska flugfélagið
Loganair byrja að fljúga til eyjanna frá Aberdeen.
„Mikil þróun hefur orðið á ferðamannaiðnaðinum í Færeyjum frá því verkefninu Visit Faroe Islands var ýtt úr vör árið 2012 og
hefur ferðamannaiðnaðurinn orðið faglegri og viðameiri“, segir Jákup Sverri Kass, framkvæmdarstjóri Vágar-flugvallarins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.