flugfréttir

Finnair þarf á Airbus A330 þotu Iberia lengur á að halda

- Framlengja blautleigu fram á vor vegna þjálfunar flugmanna á Airbus A350

6. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 06:40

Airbus A350 þota Finnair

Finnair þarf að framlengja leigusamningi á Airbus A330 breiðþotu sem félagið tók á blautleigu frá Iberia vegna skorts á flugmönnum þar sem margir flugmenn, sem hafa flogið Airbus A330 vélunum, eru nú í þjálfun til að fljúga nýju Airbus A350.

Finnair tók Airbus A330 þotuna á leigu fyrir tímabilið frá 10. janúar til 31. janúar og mun vélin sinna flugi frá Helsinki til Miami og er spænsk áhöfn um borð en tveir flugliðar verða þó finnskir.

Til stóð að Finnair myndi hafa vélina aðeins í 3 vikur en nú hefur verið ákveðið að hafa vélin í fjóra mánuði til viðbótar eða fram til 31. maí.

Leigufyrirkomulagið mun þó breytast eftir janúar en frá og með 1. febrúar munu spænskir flugmenn frá Iberia fljúga vélinni en flugfreyjur og flugþjónar verða finnskir.

Þjálfun flugmanna á nýju Airbus A350 vélarnar mun standa fram á vor og hefur þjálfunin haft smávægileg áhrif á leiðarkerfi Finnair sem sá sig knúið til að draga úr tíðni á flugi til nokkurra fjarlægra áfangastaða vegna skorts á flugmönnum.

Finnair er komið með sjö Airbus A350 þotur í flotann en félagið á von á fjórum til viðbótar árið 2017 og átta vélum frá árinu 2018 til 2023 en félagið pantaði 19 eintök af vélinni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga