flugfréttir
Mánaðarhlé á sjóflugi frá Köben til Árósa vegna viðhalds
De Havilland Twin Otter sjóflugvél danska flugfélagsins Nordic Seaplanes
Danska sjóflugfélagið Nordic Seaplanes hefur lagt niður starfsemi sína tímabundið í nokkrar vikur vegna viðhalds á þeirri einu sjóflugvél sem félagið hefur.
Nordic Seaplanes hóf starfsemi sína vorið 2016 með sjóflugi milli Kaupmannahafnar og Árósa en undirbúningur flugsins tók 4 ár
þar sem langan tíma tók að fá leyfi fyrir lendingum á sjó.
Félagið hefur eina de Havilland Twin Otter sjóflugvél sem var tekin á leigu frá króatíska fyrirtækinu European Coastal Airlines
en vélin þurfti að fara í viðhaldsskoðun og mun starfsemi Nordic Seaplanes því liggja niðri fram í miðjan febrúar.
Vélin var ferjuð þann 28. desember sl. til Altenhein í Sviss til skoðunar sem mun taka u.þ.b. einn mánuð og er gert ráð fyrir að sjóflugið
hefjist að nýju um miðjan febrúar en það fer þó allt eftir veðri.
Innritunarhlið og brottfararstaður frá Kaupmannahöfn er frá Nordre Toldbod þaðan sem vatnastrætóin, Havnebussen, hefur viðkomu, rétt sunnan við Litlu Hafmeyjuna en í Árósum er brottför og komuhlið við Miljøhavnen við Østhavnsvej.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.