flugfréttir

Hljóðritinn úr einkaþotunni finnst í Erie-vatni í Ohio

11. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 06:23

Einkaþotan hvarf skömmu eftir flugtak frá Burke Lakefront flugvellinum í Cleveland þann 29. desember sl.

Kafarar hafa fundið hljóðritann úr Cessna Citation einkaþotunni sem hvarf skömmu eftir flugtak frá Burke Lakefront flugvellinum í Cleveland í Ohio þann 29. desember sl.

Einnig hefur fundist brak úr vélinni og líkamsleifar en um borð í þotunni voru sex manns og þar af þrjú ungmenni.

Vélin var í eigu bjór- og vínframleiðandans Superior Beverage en framkvæmdarstjóri fyrirtækisins, John Fleming, flaug þotunni en með honum um borð var eiginkona hans, tveir synir þeirra á táningsaldri, nágranni þeirra, Brian Casey, og dóttir hans, Megan.

Samband við vélina rofnaði skömmu eftir flugtak en þá var vélin yfir Erie-vatninu og hefur leit staðið yfir frá því vélin hvarf en aðstæður til leitar hafa verið erfiðar á köflum vegna veðurs og mikillar ölduhæðar á vatinu.

Hljóðritinn kemur upp á yfirborðið með sérstökum tækjabúnaði sem notaður var

Köfurum tókst fyrir helgi að þrengja leitarsvæðið á vatninu niður í svæði sem er á stærð við fótboltavöll og tókst í framhaldi þess að staðsetja annan svörtu kassanna sem er hljóðritinn.

Þá hefur fundist eitt lík sem var fast við eitt af sætum vélarinnar en auk braks sem hefur fundist er hluti af skrokk þotunnar og stélhlutinn. Annað brak hefur einnig fundist en yfirvöld vilja ekki nefna af hvaða hluta vélarinnar það tilheyrir.

Hljóðritinn hefur verið sendur til samgönguöryggisnefndar Bandaríkjanna (NTSB) í Washington D.C.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga