flugfréttir

Fjölmenn útskrift í atvinnuflugmannsnámi Keilis

- 29 atvinnuflugmannsnemendur útskrifuðust í gær

14. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 15:18

Alls útskrifuðust 29 út atvinnuflugmannsnámi í gær frá Flugakademíu Keilis

Alls voru 29 atvinnuflugmannsnemendur sem útskrifuðust frá Flugakademíu Keilis við hátíðlega athöfn sem fram fór í gær, 13. janúar, en þetta er einn fjölmennasti hópurinn sem hefur lokið námi í atvinnufluginu í sögu Keilis.

Rúnar Árnason, forstöðumaður Flugakademíu Keilis flutti ávarp og afhenti atvinnuflugmönnum prófskírteini ásamt Snorra Pál Snorrasyni skólastjóra Flugakademíunnar og Marie Laure Jeanne E. Parsy fékk viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í atvinnuflugmannsnámi með 9,54 í meðaleinkunn og fékk hún einnig afhent gjafabréf frá WOWair og bók frá Icelandair. 

Alls hafa 157 atvinnuflugmenn útskrifast frá Keili frá upphafi skólans en aukin ásókn hefur verið í flugnám við Keili á undanförnum árum og er nú tekið við umsóknum í atvinnuflugmannsnám við skólann þrisvar sinnum á ári.

Þá hefur Flugakademían bætt við flugvélakostinn og hefur nú yfir að ráða tíu fullkomnar kennsluvélar frá Diamond flugvélaframleiðandanum, þær fullkomnustu og nýstárlegustu á landinu.

Önnur útskrift flugvirkjanema

Flugakademían útskrifaði einnig í annað skipti flugvirkjanema frá Flugakademíu Keilis og AST og fluttir Rúnar Árnason, forstöðumaður Flugakademíu Keilis, einnig ávarp í tilefni þess og afhenti atvinnuflugmönnum prófskírteini ásamt Árna Má Andréssyni, verkefnastjóra flugvirkjanámsins.

Björn Pálsson fékk viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í flugvirkjanáminu með 9,4 í meðaleinkunn og fékk hann gjafabréf frá WOW air og bókagjöf frá Isavia.

Með útskriftinni hafa 41 nemandi lokið flugvirkjanámi við skólann. Ásbjörn Halldór Hauksson flutti ræðu útskriftarnema fyrir hönd Flugakademíu Keilis. 

Flugakademía Keilis býður upp á námið í samvinnu við AST (Air Service Training) í Skotlandi en um er að ræða fimm anna samþykkt nám fyrir flugvirkja „Approved IR Part 66 Category B“ sem er bóklegt og verklegt iðnnám flugvirkja.

Námið tekur mið af námsskrá sem gefin er út af EASA samkvæmt samevrópskri útgáfu skírteina og sér AST um framkvæmd og ber faglega ábyrgð á gæðum námsins.

Þeir sem ljúka flugvirkjanámi hjá AST öðlast öll þau réttindi sem EASA 145 viðhaldsfyrirtæki krefjast við ráðningu flugvirkja fyrir nútíma flugvélar.

Smellið til að sjá stærri mynd







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga