flugfréttir

Airbus hækkar verð á nýjum þotum

- Sú dýrasta kostar 49 milljarða og sú ódýrasta 8,6 milljarða

14. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 16:44

Meðalhækkunin nemur um 1 prósenti

Airbus hefur hækkað kaupverð á nýjum flugvélum fyrir árið 2017 en ekki er um mikla hækkun að ræða en flestar þotur sem framleiðandinn býður upp á munu hækka um 1 prósent að meðaltali.

Hækkunin gekk í gildi á nýársdag og segir Airbus að hún sé í tengslum við almenna hækkun hjá byrgjum og þeim framleiðendum sem framleiða íhluti í vélarnar auk þess sem hráefniskostnaður hefur hækkað.

Airbus A380 er dýrasta flugvélin sem Airbus framleiðir og kostar ein risaþota um 49 milljarða króna.

Ódýrasta þotan hjá Airbus er A318 en sú vél kostar 8,6 milljarða en eftirspurn eftir þeirri vél hefur verið mjög dræm og hefur ekkert eintak af henni verið pantað frá því árið 2013.

Airbus A350 í samsetningu

Airbus A319, sem er næstminnsti meðlimurinn í A320-fjölskyldunni kostar 10,2 milljarða króna, Airbus A320, sem er vinsælasta þota Airbus, kostar 11,2 milljarða og þá kostar Airbus A321 13,1 milljarð króna.

Í nýju neo-kynslóðinni þá mun Airbus A319neo kosta 11,3 milljarða, Airbus A320neo kostar eftir hækkunina 12,3 milljarða og Airbus A321neo kostar 14,4 milljarða króna.

Vinsælasta breiðþota Airbus, A330-300, kostar 29,4 milljarða króna og minni tegundin, A330-200, kostar 26,5 milljarða.

Nýja Airbus A350 þotan kostar frá 31,2 milljörðum ef miðað er við A350-800 upp í 40,8 milljarða króna sem er verðmiðinn á stærstu útgáfunni sem er A350-1000 en miðstærðin, Airbus A350-900, kostar 35,3 milljarða.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga