flugfréttir

Hættu við lendingu þar sem freyjurnar höfðu ekki náð að tryggja farþegarýmið

- Farþegar sögðu þær hafi bara kjaftað saman og skoðað símana alla leiðina

20. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 06:09

Um borð í vél easyJet. Myndin tengist ekki fréttinni beint

Farþegaþota frá easyJet þurfti sl. föstudag að hætta við lendingu á Gatwick-flugvellinum í London og fara í fráflug („go around“) þar sem flugfreyjurnar voru ekki búnar að undirbúa farþegarýmið fyrir lendingu í tæka tíð.

Nokkrir farþegar, sem voru um borð í vélinni, sem var að koma frá Tenerife, sögðu að flugfreyjurnar hafi verið of uppteknar við að kjafta saman og skoða myndir í símanum í dágóðan tíma.

Eftir fjögurra tíma flug þegar vélin var farin að lækka flugið kom flugstjórinn í kallkerfið og sagði að lendingu myndi seinka án þess að gefa upp ástæðu fyrir seinkuninni.

„Mest allt flugið voru þær aftur í að kjafta og sýna hvor öðrum myndir í símanum sínum og þá sérstaklega yfirflugfreyjan sem virtist gera varla neitt um borð - Það var eins og það væri bara partý hjá þeim“, segir ein kona, sem var farþegi um borð í vélinni í viðtali við breska fjölmiðla.

„Svo þegar flugstjórinn kom aftur í kallkerfið um 15 mínútum síðar þá hlupu þær um allt í óðagoti að undirbúa lendingu“, segir konan.

Eftir fyrstu tilkynninguna frá flugstjóranum þá héldu einhverjir farþegar að eitthvað væri að vélinni en flugstjórinn neyddist til að segja ástæðuna sem var sú að flugliðarnir voru ekki búnir að gera farþegarýmið tilbúið fyrir lendingu.

„Þær voru greinilega ekki búnar að ná að gera allt því þær voru ennþá standandi þegar vélin var að fara lenda“, segir einn farþeginn.

Ein kona sagði að hún myndi aldrei fljúga aftur með lágfargjaldarfélagi þar sem þessi reynsla hafði hrætt átta ára son hennar.

Í tilkynningu frá easyJet segir að flug EZY8706 hefði þurft að fara í „go around“ þar sem farþegarýmið var ekki tilbúið fyrir lendingu á tilsettum tíma en fram kemur að öryggi farþega hafi þrátt fyrir það verið í lagi allan tímann.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga