flugfréttir

United leitar af nýjum þotum í stað Boeing 767

- „Frábærar vélar en þær eru að verða of gamlar“

24. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 17:41

Boeing 767-300ER breiðþota United Airlines

United Airlines er byrjað að leita af nýrri tegund farþegaþotu sem gæti leyst af hólmi Boeing 767 breiðþotur félagsins en United hefur 51 Boeing 767 þotu í flotanum; 35 af gerðinni Boeing 767-300ER og sextán af gerðinni 767-400ER.

Meðalaldur Boeing 767-300ER vélanna eru 22 ár en Boeing 767-400ER vélarnar eru aðeins yngri og hafa meðalaldur upp á 16 ár.

Boeing 767 vélarnar er eina tegundin sem United Airlines hefur tekið ákvörðun með varðandi endurnýjun en Scott Kirby, framkvæmdarstjóri United, sagði fyrr í þessum mánuði að það væri stór spurning sem á eftir að taka ákvörðun um.

United Airlines hefur sextán Boeing 767-400ER þotur í flotanum

„Þetta eru frábærar vélar en þær eru að verða of gamlar og ef við ætlum að láta þær fljúga lengur þá verðum við að verja töluverðum fjármunum í að framlengja líftíma þeirra“, segir Kirby.

Fleiri Dreamliner möguleiki en samt of dýrar í kaupum

Mögulega kæmi til greina að panta fleiri Dreamliner-þotur af gerðinni Boeing 787-8 en sökum þess hversu dýrar Dreamliner-vélarnar eru þá sér United Airlines það ekki sem hentugasta kostinn rekstrarlega séð.

Þá væri Airbus A330neo hentugri þar sem fjármangskostnaður við þá vél yrði lægri samanborið við Dreamliner-vélina og Airbus A350 en þess má geta að Delta Air Lines hefur nú þegar pantað 25 eintök af Airbus A330-900neo sem mun leysa Boeing 767-300ER vélarnar af hólmi þar á bæ.

Þá segir United að óvissa sé með pöntun í 35 Airbus A350-1000 þotur sem pantaðar voru á sínum tíma og sé möguleiki á því að félagið breyti pöntuninni og taki Airbus A330neo að hluta eða skipti allri pöntuninni út fyrir A330neo.

Boeing 767 þota United á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga