flugfréttir

Southwest fyrstir til að fá þær - Norwegian fyrstir til að fljúga þeim

- Fjórir mánuðir í afhendingar á fyrstu Boeing 737 MAX þotunum

28. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 08:08

Ein af þeim nokkrum Boeing 737 MAX 8 þotum sem verða tilbúnar í vor til afhendingar til Southwest í Renton í Washington

Southwest Airlines verður ekki fyrsta flugfélagið til að hefja áætlunarflug með fyrstu Boeing 737 MAX þotunni þrátt fyrir að félagið hampi þeim titli að vera fyrsta flugfélagið til að fá þessa nýju þotu afhenta.

Norwegian mun koma til með að hafa þriggja mánaða forskot á Southwest Airlines þar sem flugfélagið norska mun fljúga fyrsta flugið í heimi með Boeing 737 MAX í júní eða júlí í sumar en Southwest ætlar ekki að fljúga fyrsta áætlunarflugið sitt í haust eða í lok september en félögin munu fá vélarnar afhentar í sama mánuði í vor.

Þrjú flugfélög munu verða þau fyrstu til að fá Boeing 737 MAX afhenta í maí í vor en þriðja félagið er Lion Air í Indónesíu.

Gary Kelly, framkvæmdarstjóri Southwest Airlines, segir að félagið sé opinberlega fyrsta félagið til að fá Boeing 737 MAX óháð því hvenær félagið taki við fyrsta eintakinu og þrátt fyrir að Norwegian muni byrja að fljúga vélunum fyrr.

Norwegian ætlar að byrja að fljúga Boeing 737 MAX 8 í júní

Southwest ætlar ekki að byrja að fljúga vélunum fyrr en undir lok þriðja ársfjórðungs en þá verður félagið búið að losa sig við allar Boeing 737-300 og 737-500 vélarnar.

„Við þurfum ekkert endilega á Boeing 737 MAX á að halda fyrr en í október“, segir Kelly og verður félagið því annað félagið til að fljúga Boeing 737 MAX.

Norwegian ætlar hinsvegar að setja Boeing 737 MAX í leiðarkerfið strax í júní, mánuði eftir afhendingu, eða í júlí en fyrstu vélarnar verða notaðar í flugi yfir Atlantshafið til Norður-Ameríku frá Írlandi.

„Rifrildið“ milli Norwegian og Southwest Airlines varðandi hvaða flugfélag verði á undan til að fá Boeing 737 MAX veltur þó á afhendingarstöðunni en í dag er það Southwest Airlines sem er skráð „launch operator“.

Næstu flugfélög til að fá Boeing 737 MAX eru China Eastern Airlines, flyDubai og WestJet en þau fá sínar fyrstu vélar afhentar í september á þessu ári.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga