flugfréttir

Qantas tekur í notkun risastórt flugskýli í Los Angeles

- Fyrsta flugskýlið í heimi sem er sérstaklega hannað fyrir Airbus A380

30. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 08:00

Nýja flugskýlið er með þeim stærstu í Norður-Ameríku

Qantas hefur tekið í notkun risastórt viðhaldsskýli á flugvellinum í Los Angeles en skýlið er eitt af þeim stærstu í Norður-Ameríku og það fyrsta sem er sérstaklega hannað fyrir risaþotuna Airbus A380.

Qantas mun nota skýlið til að framkvæmda skoðanir og viðgerðir á Airbus A380 þotunum á meðan þær eru á jörðu niðri í Los Angeles en félagið flýgur 40 flugferðir á viku til L.A. frá Sydney, Melbourne og Brisbane með Airbus A380 og Boeing 747 þotum.

Flugskýlið er tvöfalt stærra en það skýli sem Qantas hefur notað hingað til á flugvellinum í Los Angeles og hefur það rými fyrir fjórar þotur í einu en með því verður hægt að minnka þann tíma sem fer í viðhald á flugvélum félagsins um 20 prósent.

Flugskýlið var tekið í notkun hátíðlega athöfn sl. föstudag

Um 40 starfsmenn til viðbótar frá Qantas munu koma til með að starfa í skrifstofurými í skýlinu ásamt þeim hópi flugvirkja sem munu starfa þar við vélarnar en Qantas mun einnig leigja út þjónustu á viðgerðum og skoðunum til annarra flugfélaga.

„Við höfum allt að fjórar stórar þotur sem eru á jörðu niðri hérna í Los Angeles hverju sinni og eru þær hérna í allt að 14 klukkustundir þannig það er mikið vit í því að hafa aðstöðu þar sem við getum nýtt tímann í skoðanir á vélunum“, sagði Alan Joyce, framkvæmdarstjóri Qantas, við opnunina á skýlinu.

Aðalskoðanir á flugflota Qantas hafa þó alltaf farið fram í Ástralíu en félagið hefur fjárfest mikið í aðstöðu fyrir skoðanir í öðrum heimsálfum á þeim flugvöllum sem félagið flýgur til en aðstaðan í Los Angeles er sú næst umfangsmesta.

Það flugskýli sem Qantas hefur hingað til notað á flugvellinum í Los Angeles var reist árið 1958 við upphaf þotualdarinnar en risaþotan Airbus A380 komst ekki fyrir í því skýli.









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga