flugfréttir
Flugfloti Insel Air kyrrsettur sökum skorts á viðhaldi
MD-80 þota Insel Air í lendingu á flugvellinum í St. Maarten
Fjölmargir farþegar eru strandaglópar eftir að flugmálayfirvöld á Aruba og í Curacao kyrrsettu allar þotur karabíska flugfélagsins Insel Air fyrir helgi.
Flugfélagið hefur neyðst til þess að fella niður allt flug og er ekki vitað hvenær vélarnar geta hafið sig á loft að nýju
en þetta hefur einnig bitnað niður á sjúklingum þar sem flugfélagið flýgur þeim sjúklingum til St. Maarten sem
þurfa að koma undir læknishendur.
Sl. miðvikudag var ein flugvél tekin úr umferð sökum þess að hún hafði ekki verið færð til viðhaldsskoðunar
á réttum tíma sökum fjárskorts en tveimur dögum síðar ákváðu flugmálayfirvöld að kyrrsetja allar McDonnell
Douglas MD-80 og Fokker 70 vélar félagsins.
Aðeins tvær flugvélar í flota Insel Air hafa heimild til þess að fljúga í dag sem eru af gerðinni Fokker 50 en óvíst
er um framhaldið í flugrekstri félagsins á næstu dögum.
Nokkrir flugmenn hafa lýst því yfir að þeir ætli að segja upp störfum eftir að þeir komust að því að vélarnar í
flotanum væru ekki færðar til skoðunar á tilsettum tíma.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.