flugfréttir

SAS sækir um írskt flugrekstrarleyfi

- Ætla setja upp bækistöðvar í Bretlandi og á Spáni

1. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:25

Flugvélar SAS

Scandinavian Airlines (SAS) hefur sótt um flugrekstrarleyfi á Írlandi og ætlar félagið sér að koma upp bækistöð m.a. í London og á Spáni í þeim tilgangi að auka umsvif sín á flugi til sólarlanda og til vetraráfangastaða.

Þetta verður í fyrsta sinn sem SAS setur upp bækistöð utan Norðurlandanna en félagið stefnir á að hefja áætlunarflug frá Bretlandseyjum og Spáni næsta vetur.

SAS segir í yfirlýsingu sinni að félagið ætli að tryggja sér að það sé að njóta sömu samkeppni og önnur flugfélög í Evrópu sem fljúga sambærilegar flugleiðir án þess að auka rekstarkostnað.

Rickard Gustafson, framkvæmdarstjóri SAS, tekur samt fram að allur flugrekstur SAS mun að öðru leyti haldast í óbreyttri mynd og mun félagið áfram fljúga flestar flugferðir frá Skandinavíu.

Ekki er búið að ákveða nákvæmlega hvar í Bretlandi og á Spáni SAS mun setja upp bækistöðvar og þá kemur ekki fram hversu margar vélar verða staðsettar á hverjum flugvelli fyrir sig.

Þrátt fyrir þann kostnað sem fer í að stofna írskt flugrekstrarleyfi og koma sér upp bækistöðvum í öðrum löndum þá kemur fram að fjárhagslegur ávinningur bakvið þessar aðgerðir muni smátt og smátt skila sér í auknum hagnaði.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga