flugfréttir
Airbus A350 flugmenn Lufthansa munu hafa þrefalda tegundaráritun
- Munu einnig fljúga Airbus A340-600 og A330 vélunum
Airbus A350 þota Lufthansa
Airbus A350 þotunum hjá Lufthansa verður flogið af flugmönnum sem einnig hafa flogið Airbus A330 og A340-600 vélunum og munu þeir einnig fljúga þeim vélum á sama tíma og verða þeir því með þrjár tegundaráritanir á hendi.
Martin Hoell, yfirflugstjóri hjá Lufthansa, segir að flugmenn, sem fljúga Airbus A330 og A340,
munu samt sem áður þurfa að sækja námskeið á Airbus A350 vélarnar þar sem A350
hefur öðruvísi stjórnklefa en Hoell tekur fram að A330 og A350 hafa samt sem áður
sömu tegundaráritun.
Lufthansa fékk sína fyrstu Airbus A350 þotu afhenta í desember og mun vélin fljúga
sitt fyrsta áætlunarflug þann 10. febrúar en félagið á von á því að fá sjö A350 þotur
afhentar á þessu ári en þær munu koma til með að leysa af hólmi Airbus A340-600 vélarnar.
Stjórnklefinn á Airbus A350 þotunni
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.