flugfréttir

Birgjar segjast í viðræðum við Boeing um endalok júmbó-þotunnar

- Boeing staðráðið í að halda framleiðslu áfram á Boeing 747-8

8. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:50

Boeing 747-8 dregin út úr samsetningarsal í Everett

Meirihluti þeirra fyrirtækja og birgja sem framleiða íhluti í nýju Boeing 747-8 þotuna segja að þeir eigi í viðræðum við Boeing um þann möguleika á að hætta að framleiða íhluti í júmbó-þotuna fyrr en áætlað hefur verið.

Boeing segir hinsvegar að engin áform séu uppi um að enda framleiðslu á júmbó-þotunni sem staðið hefur yfir í næstum hálfa öld.

Fyrirtækið Triumph Group framleiðir m.a. einingar fyrir skrokk vélarinnar, íhluti í stélhluta og fleiri hluti sem notaðir eru í samsetningu á Boeing 747-8 vélunum en samningurinn rennur út um mitt árið 2019.

„Við eigum í viðræðum við Boeing um það hvenær framleiðslan á Boeing 747 mun taka enda. Eins og markaðshorfurnar líta út í dag þá er verið að skoða hvort æskilegt sé að binda enda á framleiðsluna fyrr en áætlað er“, segir Dan Crowley, framkvæmdarstjóri Triumph Group.

Triumph Group framleiðir margar einingar fyrir júmbó-þotuna fyrir Boeing

Hver einasta eining sem framleidd hefur verið hjá Triumph Group fyrir júmbó-þotuna hefur komið út í tapi fyrir fyrirtækið sem þýðir að rekstur þess myndi batna til muna ef Boeing myndi ákveða að hætta að framleiða júmbó-þotuna.

Boeing segir að framleiðandinn sé samt sem áður sannfærður um að ná að selja fleiri júmbó-þotur á næstunni en seinasta pöntun kom árið 2016 er United Parcel Service (UPS) lagði inn pöntun í 14 fraktþotur af gerðinni Boeing 747-8F.

„Við ætlum að halda áfram að framleiða Boeing 747-8 og það eru engin áform um að hætta framleiðslunni. Við eigum von á því að horfurnar í fraktfluginu eigi eftir að batna á næstu árum og fraktflugfélögin munu þurfa að endurnýja flugflota sinn“, segir í yfirlýsingu frá Boeing.

31 júmbó-þota af gerðinni Boeing 747-8 hefur verið afhent frá árinu 2012 en í dag eru aðeins afhentar sex júmbó-þotur á ári.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga