flugfréttir

Þriðja Boeing 767 breiðþota Icelandair komin til landsins

- „Eldgjá“ byrjar að fljúga á fimmtudag - Tvær vikur í fjórðu breiðþotuna

11. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 17:45

TF-ISP lenti í gær og eftir tvær vikur mun fjórða Boeing 767 þotan bætast í flota Icelandair

Breiðþotufloti Icelandair mun tvöfaldast á næstu tveimur vikum þegar fjórar Boeing 767 vélar munu fljúga áætlunarflug á vegum félagsins.

Fyrsta Boeing 767-300ER breiðþotan, TF-ISN, kom til landsins í 25. apríl 2016 eftir endurbætur á farþegarými í Kína og hóf sú vél reglubundið áætlunarflug 1. maí 2016 þegar fyrsta flugið var flogið með henni frá Keflavík til New York en þá var rúmur áratugur liðinn frá því Icelandair var með breiðþotur í áætlunarflugi.

Tíu dögum síðar bættist önnur Boeing 767 þotan í flotann, TF-ISO, og hafa vélarnar tvær á þessum 10 mánuðum flogið til tólf áfangastaða í leiðarkerfi félagsins þar sem mesta eftirspurnin hefur verið eftir flugsætum.

Þann 6. maí í fyrra, aðeins fimm dögum eftir fyrsta breiðþotuflugið var flogið, tilkynnti Icelandair að félagið hefði fest kaup á tveimur Boeing 767-300ER breiðþotum til viðbótar sem koma úr flota nýsjálenska flugfélagsins Air New Zealand.

TF-ISP kom í gær - TF-ISW kemur í lok febrúar

Önnur þeirra tveggja Boeing 767 þotna, sem bætast við í flotann, kom til landsins seint í gærkvöldi en sú vél ber skráninguna TF-ISP og hefur fengið nafnið „Eldgjá“.

Icelandair hefur nú verið með tvær Boeing 767 breiðþotur í flotanum
í 10 mánuði

TF-ISP var flogið frá Xiamen í Kína þar sem vélin hefur gengist undir endurnýjun á farþegarými þar sem skipt hefur verið út innréttingum, nýjum sætum komið fyrir í samræmi við önnur sæti í vélum Icelandair auk þess sem þráðlausu neti var komið fyrir.

TF-ISP lenti á Keflavíkurflugvelli klukkan 00:30 í gærkvöldi eftir miðnætti en þá hafði vélin lagt að baki 13 tíma flug frá kínversku borginni Xiamen en flugleiðin lá yfir Kína og Mongólíu en þriðjungur flugsins var yfir þvert Rússland.

„Eldgjá“, sem er þriðja Boeing 767 þota Icelandair, mun fá flughæfnisvottun eftir helgi og mun hún fara strax í sitt fyrsta áætlunarflug næstkomandi fimmtudag þann 16. febrúar.

Fjórða Boeing 767 vélin mun svo bætast við eftir um 2 vikur en sú þota mun fá skráninguna TF-ISW en verið er að leggja lokahönd á frágang á innréttingum í Xiamen í Kína.

„Þær eru alveg eins og fyrri vélarnar okkar nema að þessar hafa verið allt sitt „líf“ hjá Air New Zealand þannig það er bara einn fyrri eigandi“, segir Jens Þórðarson, framkvæmdarstjóri Icelandair Technical Services, í samtali við Alltumflug.is.

TF-ISP bar áður skráninguna ZK-NCK í flota Air New Zealand og var hún afhent til nýsjálenska flugfélagsins þann 23. júní árið 1997.

TF-ISW var áður ZK-NCL en hún var afhent til Air New Zealand þann 28. október sama ár og eru báðar vélarnar því 19 ára gamlar.

TF-ISP á Keflavíkurflugvelli í dag







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga