flugfréttir
Norwegian leitar að flugfreyjum og flugþjónum í New York á Boeing 737 MAX
- Munu fljúga um Steward-flugvöllinn í New York-fylki
Dreamliner-þota Norwegian
Norwegian er byrjað að leita að flugfreyjum og flugþjónum í New York sem munu koma til með að starfa um borð í Boeing 737 MAX vélunum sem félagið á eftir að fá afhentar.
Vélarnar verða notaðar í flugi yfir Atlantshafið milli Evrópu og Bandaríkjanna
en Norwegian ætlar sér að fljúga til og frá New York um Steward International flugvöllinn
(SWF) sem staðsettur er í um 50 kílómetra fjarlægð norður af Manhattan í New York-fylki.
Það er flugráðningarskrifstofan OSM Aviation sem fer með ráðningarmál fyrir hönd
Norwegian en ein skilyrðin eru að umsækjendur séu búsettir í Orange-sýslunni í New York.
Norwegian tilkynnti þann 5. desember sl. að félagið myndi fljúga til New York um
Steward-flugvöllinn en félagið er einnig að skoða möguleika á að fljúga til Portsmouth í New
Hampshire eða til Providence í Rhode Island.
Norwegian fær fyrstu Boeing 737 MAX þotuna í maí en til stendur að fljúga frá
Steward-flugvellinum til áfangastaða á Írlandi, Bretlandi, Skotlandi og til Noregs.
Þess má geta að Norwegian flýgur nú þegar um Kennedy-flugvöllinn í New York til áfangastaða á borð við Fort-de-France, Pointe-à-Pitre, London, Kaupmannahöfn, Osló, París og Stokkhólmur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.