flugfréttir
Harrison Ford flaug of nálægt Boeing 737 þotu og lenti óvart á taxiway
- „Átti þessi faregaþota að vera þarna fyrir neðan mig?“
Harrison Ford gengur í kringum Aviat Husky flugvélina
Leikarinn Harrison Ford er sagður hafa komist í hann krappann er aðskilnaður varð hættulega lítill á milli einkaflugvélar sem hann flaug og farþegaþotu frá American Airlines.
Ford var að fljúga gamalli Husky Aviat A-1C flugvél og var hann að koma inn til lendingar á
John Wayne flugvellinum í Kaliforníu en ekki fór betur en svo að hann lenti
óvart á akstursbraut („taxiway“) sem liggur samsíða flugbrautinni.
Flugvélin hans Ford fór rétt yfir Boeing 737 þotu frá American Airlines
sem beið við brautarendann eftir flugtaksheimild og voru aðeins nokkrir
metrar sem skildu vélarnar að.
Í upptöku frá flugumferðarstjórn mátti heyra Harrison Ford spyrja turninn: „Átti
þessi þota að vera þarna beint undir mér?“
Harrison Ford kemur inn til lendingar á flugvellinum í Santa Monica sl. mánudag skömmu áður en hann lenti á taxiway á John Wayne flugvellinum
Flugumferðarstjórar tilkynntu leikaranum að hann hefði lent á „taxiway“ í
stað þess að lenda á flugbrautinni en slíkt er brot á öryggisreglum samkvæmt
lögum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA).
Flugumferðarstjórarnir höfðu gefið Ford fyrirmæli í aðfluginu og las hann þau
öll rétt til baka.
FAA hafa hafið rannsókn á atvikinu og gæti farið svo að annað hvort verði
leikarinn sviptur réttindum sínum til að fljúga tímabundið eða að hann sleppur
við áminningu.
110 farþegar voru um borð í Boeing 737 þotu American Airlines og sex manna
áhöfn en vélin fór í flugtak nokkrum mínútum síðar áleiðis til Dallas.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.