flugfréttir

Aer Lingus mun skipta Boeing 757 út fyrir Airbus A321LR

- IAG sagt hafa pantað sjö Airbus A321LR fyrir írska flugfélagið

15. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:48

Boeing 757 frá Aer Lingus í flugtaki í Toronto

Sagt er að International Airlines Group (IAG), móðurfélag British Airways, Iberia og Air Lingus, sé búið að ganga frá pöntun í sjö Airbus A321LR þotur sem eru langdrægar útgáfur af Airbus A321neo þotunni.

Þetta er haft eftir heimildarmönnum sem vilja ekki koma fram undir nafni en þeir telja að mögulega muni IAG greina frá þessu þann 24. febrúar þegar félagið tilkynnir afkomu British Airways.

Vélarnar fara í flota írska flugfélagsins Aer Lingus og eiga þær að leysa af hólmi fjórar Boeing 757 þotur sem félagið hefur haft í flota sínum sl. þrjú ár.

Aer Lingus tók árið 2014 á leigu þrjár Boeing 757 þotur frá ASL Airlines Ireland sem hafa verið notaðar í flugi til Ameríku frá Shannon til áfangastaða á borð við Boston og New York og einnig hefur félagið flogið vélunum frá Dublin til Toronto.

Aer Lingus tók árið 2015 á leigu fjórðu þotuna er umsvifin í Atlantshafsfluginu til austurstrandarinnar voru aukin með flugi til Washington og til Hartford í Connecticut.

Tölvugerð mynd af Airbus A321neo þotunni

Félagið mun nota Airbus A321LR á þessum leiðum en flugfloti Aer Lingus samanstendur einungis af Airbus-þotum fyrir utan þær fjórar Boeing 757 þotur sem félagið er með á leigu.

Móðurfélagið, IAG, segir að Aer Lingus eigi eftir að heyja samkeppni við Norwegian sem ætlar sér stóra hluti í flugi milli Írlands og austurstrandar Bandaríkjanna með Boeing 737 MAX þotum.

IAG tilkynnti í nóvember í fyrra að félagið hefði hug á að skipta yfir í langdrægar Airbus A321neo þotur með ráðstöfunarfé upp á 46 milljarða króna sem er ætlað að standa kostnaðinn af því að skipta um flugvélategund og fara úr Boeing 757 yfir í Airbus A321LR.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga