flugfréttir

Sjö farþegar stóðu á ganginum í yfirbókaðri vél

- Vildu ekki snúa við þar sem það krafðist þess að losa sig við eldsneyti

25. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 07:44

Boeing 777 þota Pakistan International Airlines (PIA)

Rannsókn stendur yfir á því hvers vegna sjö farþegum var hleypt um borð í farþegaþotu frá pakistanska flugfélaginu Pakistan International (PIA) þrátt fyrir að vélin var yfirbókuð en farþegarnir voru látnir standa um borð á göngum vélarinnar í þriggja tíma flugi.

Atvikið átti sér stað þann 20. janúar sl. er þotan, sem er af gerðinni Boeing 777-200, flaug frá Karachi til borgarinnar Medina í Sádí-Arabíu en um borð eru sæti fyrir 409 farþega en 416 farþegar voru um borð í vélinni.

Upp komst um atvikið nú nýlega en fjölmiðlar í Pakistan segja að stjórn flugfélagsins pakistanska hafi ekki litið atvikið alvarlegum augum þar sem ekki var gripið til aðgerða í kjölfar þess.

Mjög alvarleg staða hefði komið upp ef neyðartilvik hefði átt sér stað auk þess sem sérfræðingar segja að ekki hefui verið til súrefnisgrímur fyrir farþegana sjö ef loftþrýstingur um borð hefði fallið niður.

Fram kemur að starfsfólk PIA hafi gefið út handskrifuð brottfararspjöld fyrir aukafarþegana sjö og hleypt þeim um borð en flugfreyjur urðu varar við að ekki voru nóg sæti fyrir alla þegar búið var að aftengja landgang.

Flugstjórinn segist ekki hafa heyrt af vandamálinu fyrr en eftir flugtak og vildi hann ekki snúa við þar sem það hefði þýtt að vélin hefði þurft að losa sig við mikið magn af eldsneyti fyrst sem er ekki vél séð af stjórn flugfélagsins.

Talsmaður PIA segir að atvikið sé nú til skoðunar hjá stjórn félagsins og verði gripið til aðgerða þegar komist verður af því hver það er sem var ábyrgur fyrir þessu máli.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga