flugfréttir
FAA uppfærir flugöryggi í Kenýa í Catagory 1
Frá flugvellinum í Nairobi í Kenýa
Flugöryggismál í Kenýa er aftur orðin fyrsta flokks en bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa uppfært öryggisstuðul landsins í flugmálum upp í Catagory 1.
Þetta þýðir að öryggismál í fluginu í Kenýa eru núna
í samræmi við alþjóðastaðal Alþjóðaflugmálastofnunarinnar
(ICAO) og verður því auðveldara fyrir farþega að fljúga beint
til Kenýa þar sem flugfélög í landinu munu með þessu geta
sótt um leyfi til að hefja beint flug til Evrópu og Bandaríkjanna.
Kenya Airways mun í kjölfar þess sækja strax um leyfi
til að deila farmiðasölu með bandarískum flugfélögum en
í framhaldi af því mun félagið sækja um leyfi til að hefja
áætlunarflug til Bandaríkjanna.
Delta Air Lines, sem einnig er aðili í Skyteam líkt
og Kenya Airways, hefur meðal annars lýst yfir áhuga á
því að hefja beint flug frá Bandaríkjunum til Nairobi.
Flugöryggismál í löndum Afríku eru verulega ábótavant víðast hvar
en frá Afríkulöndum er aðeins flogið
til Bandaríkjanna frá Marokkó, Grænhöfðaeyjum, Senegal,
Ghana, Nígeríu, Eþíópíu og frá Suður-Afríku.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.