flugfréttir

Emirates velur Köben fyrir prófanir á nýrri afísingartækni

- Check Time reiknar nákvæmlega út hversu mikin afísingarvökva þarf til

1. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:39

Með nýrri tækni mun Emirates geta séð nákvæmlega hversu mikið magn af afísingarvökva þarf á vélarnar í flotanum í hvert skipti

Emirates hefur valið flugvöllinn í Kaupmannahöfn sem staðsetningu fyrir sérstakar prófanir í vetrarveðri sem félagið mun framkvæma en sömu prófanir munu einnig fara fram á O´Hare-flugvellinum í Chicago.

Flugvöllurinn í Dubai hefur ekki mikla reynslu af afísingu flugvéla og þar af leiðandi hefur Emirates valið Köben og Chicago sem staði fyrir prófanir á nýrri tækni sem Emirates ætlar að prófa sem gengur út á að áætla með mikilli nákvæmni hversu mikið magn af afísingarvökva þarf til hverju sinni.

Nýja kerfið, sem kallast „Check Time“ er þróað í samvinnu við finnska fyrirtækið Vaisala sem er leiðandi í þróun á mælikerfum fyrir flugiðnaðinn.

Airbus A380 risaþota frá Emirates afísuð

Hingað til hafa flugmenn þurft að styðjast við flugáætun, veðurupplýsingar og önnur gögn til að áætla það magn sem þarf að afísingarvökva en Check Time kerfið notar skynjara sem reikna út upplýsingar um hitastig, vind og úrkomu sem eru send beint til flugmanna gegnum ACARS.

Kostnaðurinn við að afísa risaþotuna Airbus A380 er mjög mikill og ef hægt er að láta minna magn af vökva fara til spillis má bæði spara fjármuni og draga úr mengun.

Með tilkomu Check Time kerfisins geta flugmenn einbeitt sér að öðru við undirbúning flugsins í stað þess að þurfa að reikna út hversu mikið magn þeir þurfa af afísingarvökva fyrir brottför.

Emirates ákvað að að velja Kaupmannahöfn og Chicago fyrir prófanirnar þar sem félagið flýgur til þessara flugvalla sem þar að auki þurfa báðir að berjast við krefjandi veður yfir vetrartímann.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga