flugfréttir

Afhendingum seinkar á CSeries vegna skorts á hreyflum

- Flöskuháls hjá Pratt & Whitney seinkar afhendingum um tvo mánuði

4. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 07:41

CS100 tilraunaþotan frá Bombardier

Bombardier hefur neyðst til þess að fresta afhendingum á CSeries-þotunum um tvo mánuði vegna skorts á nýjum hreyflum frá Pratt & Whitney.

Bombardier afhenti seinast CSeries-þotu þann 31. desember sl. sem var af gerðinni CS300 sem fór til Air Baltic en fyrir mánuði síðan stóð til að afhenda sjöttu CS100 þotuna til SWISS International Air Lines en sú vél hefur staðið fyrir utan verksmiðjurnar í Mirabel í Kanada í nokkrar vikur.

Þetta setur mikla pressu á Bombardier sem ætlaði sér að ná að afhenda 30 til 35 CSeries-þotur á þessu ári til viðskiptavina sinna.

Vandamálið snýst um skort á íhlutum frá þeim framleiðendum sem smíða parta í PW1000G hreyfilinn og nær Pratt & Whitney því ekki að fá þá á réttum tíma frá samstarfsaðilum sem tefur framleiðsluna.

Meðal þess eru tafir á hreyflablöðum en fyrirtækið sem framleiðir blöðin í PW1000G hreyfilinn segir að erfiðara hefur reynst að smíða hreyflablöðin í fjöldaframleiðslu en gert var ráð fyrir.

Hinsvegar stendur til að opna nýjar verksmiðjur sem framleiða hreyflablöðin í Japan og í Michigan í Bandaríkjunum og er talið að það muni binda endi á töfina og við það mun Pratt & Whitney ná að afhenda frá 350 til 400 hreyfla á þessu ári.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga