flugfréttir
Norwegian mun fljúga til Alicante frá Íslandi
Boeing 737-800 þota Norwegian á flugvellinum í Alicante
Norwegian Air Shuttle mun bæta við Alicante við Íslandsflugið sitt en félagið flýgur nú þegar til landsins frá fjórum áfangastöðum allan ársins hring.
Fyrsta flug Norwegian til Alicante verður flogið þann 5. júní næstkomandi og verður flogið
tvisvar í viku, á mánudögum og föstudögum.
Félagið mun fljúga til Alicante með Boeing 737-800 vélum og er flugtíminn um 4 klukkustundir
og 45 mínútur.
Brottför frá Keflavík er kl. 19:35 á mánudögum (19:55 á föstudögum) og lent á Alicante
klukkan 02:05 á mánudögum (02:25 á föstudögum).
Til baka frá Alicante er brottför kl. 16:00 á mánudögum (16:25 á föstudögum) og lent í Keflavík
kl. 18:45 (19:10 á föstudögum).
Félagið mun fljúga til Alicante í samkeppni við WOW air og Primera Air sem bæði hafa flogið
þangað en fjölmargir Íslendingar hafa gegnum árin lagt leið sína til nærliggjandi svæða
í nágrenni Alicante á borð við Torrevieja, Benidorm og fleiri staða.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.