flugfréttir

Ættingjar ætla að fjármagna sína eigin leit að flugi MH370

- Formlegri leit af malasísku farþegaþotunni var hætt í janúar

6. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:19

Þann 8. mars verða þrjú ár liðin frá því að malasíska farþegþota hvarf á leið sinni frá Kuala Lumpur til Peking

Fjölskyldur og ættingjar þeirra farþega sem voru um borð í malasísku farþegaþotunni, flugi MH370, sem hvarf sporlaust í mars árið 2014, hafa ákveðið að fjármagna sína eigin leit að flaki vélarinnar.

Á miðvikudag verða 3 ár liðin frá því vélin hvarf af ratsjá yfir Tælandsflóa á leið sinni frá Kuala Lumpur til Peking en um borð voru 227 farþegar auk 12 manna áhafnar.

Í janúar sl. var formlegri leit að vélinni hætt en leitin, sem kostaði um 15 milljarða króna, skilaði litlum sem engum árangri þrátt fyrir stærstu og umfangsmestu leit sem gerð hefur verið af týndri flugvél.

Talið er að vélin hafi endað för sína lengst suður í Indlandshafi en 33 hlutir og brak úr vélinni hafa fundist sem talið er að tilheyri flugi MH370 en mesta brakið hefur skolað upp á land við austurströnd Afríku auk þess sem brak hefur fundist við strendur Madagascar.

Aðstandendur hafa m.a. ferðast til Madagascar í leit að braki úr vélinni

Aðstandendur hafa nú ákveðið að taka málið í þeirra hendur þar sem stjórnvöld í Ástralíu, Malasíu og í Kína hafa hætt formlegri leit en yfirvöld hafa lýst því yfir að ekki standi til að hefja leit að nýju án nýrra gagna eða vísbendinga.

Aðstandendur vonast til þess að ná að safna 1.5 milljörðum króna til að láta fara fram leit á svæði sem staðsett er norðar en það svæði sem leitin fór fram en margir sérfræðingar telja að malasíska farþegaþotan hafi farist norðan við leitarsvæðið.

Grace Nathan, móðir Anne Daisy, sem var farþegi um borð í flugi MH370, segir að söfnunin muni ekki hefjast fyrr en vitað er að stjórnvöld hafi gefið leitina upp á bátinn fyrir fullt og allt.

Liow Tiong Lai, samgönguráðherra Malasíu, hefur neitað sögusögnum um að leitinni var hætt þar sem fjármagn til hennar var uppurið.

„Fjármögnun leitarinnar var ekki vandamálið. Við þurftum að vera vissir um hvar ætti að leita og það skorti áreiðanleg gögn - Við þurfum fleiri sönnunargögn“, sagði Tiong Lai á blaðamannafundi sem fram fór í Kuala Lumpur þann 4. mars sl.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga