flugfréttir
Franskir flugumferðarstjórar í fimm daga verkfall
- Mun hafa áhrif á yfir 1.000 flugferðir í Evrópu í þessari viku
Frá Charles de Gaulle flugvellinum í París
Fimm daga verkfallsaðgerðir meðal franskra flugumferðarstjóra hófst í dag og hafa fjölmörg evrópsk flugfélög neyðst til þess að fella niður flugferðir vegna þessa.
EasyJet, Ryanair, British Airways og Lufthansa hafa öll í morgun fellt niður flugferðir
en talið er verkfallið muni hafa áhrif á yfir 1,000 flug í þessari viku sem þarf að aflýsa.
Verkfallið hefur áhrif á flug til og frá Frakklandi auk flugferða milli Bretlands og Ítalíu, Sviss
og Spánar og annarra landa þar sem flugfélög þurfa að fljúga í gegnum franska lofthelgi.
Flugumferðarstjórnsvæðin í Brest og Bordeaux standa í verkfallsaðgerðum
fram til kl. 19:00 á föstudag og þá hafa flugumferðarstjórar í suður Frakklandi lagt niður
störf sín til klukkan 05:00 á föstudag frá og með morgundeginum.
Flugfélagasamtökin Airlines for Europe (A4E) segja að aldrei hafi eins oft komið
til verkfalla meðal franskra flugumferðarstjóra líkt og gerðist árið 2016 en aðgerðirnar
stóðu yfir samanlagt í 41 dag.
Ryanair hefur hvatt frönsk stjórnvöld og framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins til að
grípa í taumana vegna verkfallsins en félagið hefur í dag þurft að fella niður 45 flugferðir.
Verkfallsaðgerðirnar hafa ekki haft áhrif enn á flug Icelandair og WOW air sem flugu
á áætlun til Parísar í morgun.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.